Police Gellurnar
Áhugverðar síður
02.08.2006 16:19:58 / Birdy

Verslunarmannahelgin

Jæja þá er loksins komið plan á helgina :D Ég og yndislegi kæróinn minn ætlun að bruna upp í bústað ásamt frábæru liði! Í þessu þotuliði eru Náttla ég, Hólmgeir Hel, Zibz, Kristján, Eva, Mattý, Ingi, Magndís, Inga og Helgi. 

 Zibz er með planið alveg á hreinu er búin að skipuleggja inni og útileiki, hún segir að Magndís sé sko alger sjéní í útileikjum vei vei brennó ég er öll spennt fyrir þessari helgi.


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 14:00:14 / Birdy

fólkið

Bara sýna ykkur fallega fólkið


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 16:49:50 / Birdy

Asnar upp til hópa

Hvað fékk karlmenn til að halda að þeir geti spilað með okkur og lifað tvöföldu lífi, hvernig dettur þeim í hug að við eigum ekki eftir að komast að hinu sann og það sérstaklega á íslandi.

Ég verð að segja mín fagra vinkona þú ert mesta yndi sem til er og ert betur sett án svona asna. 


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 17:38:36 / Birdy

Eilífur Hammond

Hvíl í friði vinur minn og blessuð sé minning þín

Þín vinkona Berta


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 14:30:55 / Birdy

Lélegur bloggari með afsökun ;)

Já ég veit !!! Ástæðan fyrir þessu lélega bloggi er þessi .....

Ég ákvað að slá til og  fara á nánast blint date því ekki voru nú félagarnir að vera minni bjánar sem mín hitti þannig sá ekki fram á það að ég hefði miklu að tapa. Félaginn hafði fengið nr mitt hjá sameiginlegum vini sem fannst við vera svona ideal  fyrir hvort annað  þar að segja bæði kex rugluð :haha:

Félaginn kom og sótti mig og bauð stúlkunni út að borða og í drykk (sem reyndist ekki vera með neinu dópi í vei vei vei ) svo gerðumst við boðflennur í afmæli sem Zibs var í og drukkum öl með þeirri skvísu og djammið hélt áfram fram eftir nóttu. Félaginn skilaði mér svo í heili lagi heim( annað vei  vei  vei ) 

Ekki endaði þetta þar heldur við tók þessi skemmtilega þema vika sem innihélt bíóferðir og marga marga marga kílómetra af rúntum:!:

Eftir þessa reynslu verð ég að segja að ég er orðin hrikalega hlynt því að fara á blind date því ég hafði þennan fjallmyndalega og yndislega mann upp úr krafsinu:D

Svo hér eftir mun ég gera mitt allra besta til að koma mínu fólki á blind date :haha:

Kveðja Birdy


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 16:29:14 / Birdy

Fyrsti í súkkulaði í dag :)

Herðu viti menn að mín bara komin út í sumarið og byrjuð að skemmta landanum.

Skellti mér í þessi fínu afmæli þar seinustu helgi hjá Andrési og Írisi vinkonu. Þetta var alvega geggjað gítarpartý hjá henni Íris allir í banastuði :D  mér til mikillar ánægju.

"Já það var mikil ánægja þessa helgi og þá sérstaklega hjá tveimur"

Fyrsta manninn þarf varla að kynna ég virðist hitta marga slíka það er maðurinn sem á konu eða kæró (virðist koma í mörgum myndum og oft að mínum dyrum) en mín hljóp nú í byrtu frá því creepi

Annar maðurinn er sækó sem getur ekki fengið á broddinn og þarf að eitra fyrir manni til að reyna koma sínu á framfæri en viti menn mín fattaði fljótlega hvað var að gerast og hljóp því enþá hraðar frá þeim gutta og guð má vita hvað hefði getað gerst ef ég hefði ekki fattað að helvítis ógeðið hafi sett eitthvað í glasið mitt.

En já þessar tvær persónur sem ég sagði frá rakst ég á "SANNKÖLLUÐ herramanns helgi"

Djöfulsins fífl  :evil:

en seinasta helgi var nú betri sagan kemur bráðum :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.02.2006 00:44:54 / Birdy

Úúúúlllaaaalllllaaaaa

Shétturinn tetturinn hvað Alexander var flottur í kvöld, hann var alveg að meika það feitast af öllum :D

Herðu svo er það bara að horfa á Silvíu Nótt trylla lýðinn á morgun, vá hvað mig hlakkar til:haha:

Það er svo stíf dagskrá á morgun veit ekki hvernig ég á að ná að gera allt.

Er að vinna til 18:00 svo ætla mín að skella sér heim og setja rúllur í hárið og í dressið og beint í afmælið hans Andrés Péturs á Nasa, verð að reka aðeins inn nefið en svo er það í 25 ára afmælið hennar Írisar frænku sem kemur alla leið frá Djúpavogi til að fagna því með okkur ohhh hlakkar endalaust til að hitta allt þetta fólk þar :D

Svo bara hella í sig og vera verulega blekuð það sem eftir er kvöldsins:haha:

Vonandi hitti ég þig og alla hina líka :!::!::!::!: :P


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 00:02:39 / Birdy

Idolið

Jæja hver á eftir að vinna ?????

Ég ætla gefa honum Alexander nokkur stig, mar verður að styðja við sína :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 21:50:22 / Birdy

Névert

þetta er Névert, kallinn hennar Zibs:D

Fann flottustu myndirnar af honum sem til eru, hann er nebbla soldið skrítinn með með svona uppstyllingar, myndast afar vel:haha:

Névert  reiður

Névert að leita að mat

Þegar Névert var módel

Névert hræddur

Vinirnir hans Néverts


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 23:40:07 / Birdy

víiiiii loksins kominn karlkyns í lífið !!!

Jább þetta er satt það er kominn einn svona fjallmyndarlegur inn í lífið mitt:D

Sko hann er mikið loðinn, mikið hvítur, afskaplega ljúfur samt og hryllilega myndarlegur, hann á það til að vera frekur en ég er að reyna temja hann aftur eftir bestu getu. Já það er rétt hann hefur verið hluti af lífi mínu áður og var að skjótast inn í það aftur og ég er bara nokkuð sátt við það :lol:

En þessi ljúfa vera heitir Golíat


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 17:50:05 / Birdy

Prump...................

Zibs segir að ég sé með vatnshaus þess vegna get ég PRUMPAÐ með nefinu!!:lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 23:46:59 / Birdy

Á B2 með Névert og Zibs

Já ég, Zibs og Névert fórum á B2 í gær. Við finnum okkur gott borð með góðu útsýni fyrir þessa einhleypu ( mig ), og um leið segir Zibs hey Birdy þarna er alveg svona ekta gaur fyrir þig og skelli hlær ég lít við og fæ kast því gaurinn var fyrrum yfirmaður minn. Stutt lýsing mjög hár með sítt ljóst hár og gleraugu og mun eldri en ég og giftur held ég allavega með konu til fjölda ára !!!!!!!

Eftir þetta atvik hófust umræður um það hvernig gaura ég laðaði að mér sem sagt frekar mikla hálfvita, dóna og fífl en Névert var nú ekki alveg að trúa þessu fyrr en þessi ákveðni yfirmaður birtist og heilsar mér voða vel en fer eftir stutta stund að hella í sig meira víni kemur aftur og fær sér sæti við hliðin á mér. Ekki leið á löngu að hann var byrjaður að reyna heilla mig upp úr skónum með hinum ýmsum sögum. Að hann hefði viljað sofa hjá mér þegar ég var svona 15 ára þegar ég var að vinna hjá  honum en ég var bara svo saklaus og lítil þá !!!!!!!!!!! ojjjjjjjjjjjjj creeeeepyyyyyyyyy

Ég minnist á það að hann eigi nú konu og þá segir þessi maður já en það er í lagi því hún segir að hann má alveg kúra hjá annari konu ef hún er  ljóshærð og með stór bjóst og þetta átti að heilla mann upp úr skónum eftir fleiri svona sögur ákváðum við öll að forða okkur.  Þetta er eimmit uppskrift að kalrmönnunum sem virðast laðast að mér ekki skrítið að skvísan sé á lausu !!! ef þetta er úrvalið.:^)

Þvílíkt heillandi Gaur

Eitt enn ég var að lesa að  um 11.000 íslendingar væru með átröskun þetta er hræðinlegt. Fór á stúfana og fann þessa mynd sem er soldið gróf en sönn lesið það sem stendur neðst.

http://www.celebworld.org/sitebuilder/images/1197-641x885.png


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 23:13:59 / Birdy

We r back

Skoooo alltaf þegar ég er að fara skrifa og setja eitthvað skemmtilegt hér inn þá er eitthvað að en ......

Gleðilegt ár kæru vinir   :haha::haha:

Þetta hlýtur að hafast með þolinmæðinni ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 18:42:21 / Birdy

Kíkið á videó frá Bootcamp

Þetta er tær snild, ég og Zibs vöknuðum kl 05:00 um daginn, já um hánótt til að fara á æfingu og það var tekið upp á videó fyrir kastljósið.

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4270043/1


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 22:50:46 / Police

Dagarnir okkar

Skoooooo ástæðan fyrir svona fáum færslum frá okkur á blogginu er þessi

Mánudagur

  • vakna, vinna, borða, sofa

Þriðjudagur

  • vakna, Bootcamp, vinna, borða, sofa

Miðvikudagur

  • vakna, vinna, borða, sofa

Fimmtudagur

  • vakna, Bootcamp, vinna, borða, sofa

Föstudagur

  • vakna, vinna, borða, stundum bíó,sofa

Laugardagur

  • vakna, Bootcamp, vinna, svindlmatur, bíó, bæjarrúntur, sofa

Sunnudagur

  • vakna, vinna, borða, sofa

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti